24.11.2008 | 20:56
Þórarinn Þeyr 5 ára :0)
Hæ, hæ,
Hér er allt gott að frétta, allavega ennþá. Obama spáir að allt fari versnandi áður en það fer batnandi, en það er eðlileg þróun. Kannski maður fari að hamstra mat í frystinn áður en allt hækkar enn meira.
Við fórum í afmæli á laugardaginn hjá Þórarni og Herði Val. Þeir héldu upp á það saman strákarnir. Það var mikið fjör og mikið dót haha. Frábærar kökur og geðveikir brauðréttir. Afmælið var fram yfir miðnætti hjá stóra fólkinu og einnig hjá hluta af litla fólkinu. Við fengum okkur bjór og fórum út á pall hjá Rúnari og Maríu og kveiktum varðeld, og svo var spilað og sungið á íslenska vísu, svaka fjör, á meðan börnin léku sér inni að dótinu. Embla ákvað að fara að sofa, það var löngu kominn háttatími að hennar mati. Hún sofnaði í hjónarúminu litla prinsessan mín. En partýljónið, Eygló Þóra vakti alveg þangað til við fórum heim. Við hlógum mikið hjónin á heimleiðinni, því að Eygló skreið upp í stólinn sinn og blaðraði og hló og svo um leið og Pétur smellti beltinu var eins og ýtt hefði verið á off takka. Því litla skinnið steinsofnaði og vaknaði ekki fyrr en klukkan 9 daginn eftir haha. Já hún vill sko alls ekki missa af NEINU.
Nú er ég byrjuð eina ferðina enn á fullu í leikfiminni. Ég vona bara að engin veikindi verði á næsta leyti. Á eftir erum við Pétur að fara og kaupa kalkúninn fyrir Tanksgiving, því að það tekur víst 3 sóarhringa að þýða fuglinn. Baddi og Sara, Húni og Anna og börn ætla að koma í mat til okkar. Það verður svaka gaman hjá okkur, ég skrifa um það síðar hehe.
Til hamingju með afmælið í gær, Guðborg mín! Þúsund afmæliskossar til þín frá okkur öllum .
Kær kveðja Þóra
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Þóra Sigurborg Guðmannsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með daginn Þóra mín :-)
Unnur Björk Arnfjörð (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 11:14
Hæ hæ, innilega til hamingju með daginn í dag:) Ég vona að þú eigir góðan dag.
Knús þín vinkona Anna Fanney
Anna Fanney Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 23:19
til hamingju með afmælið í gær :)
ólöf Guðjbörg (IP-tala skráð) 29.11.2008 kl. 14:14
Takk fyrir það. Alltaf gaman að fá fallegar afmæliskveðjur.
Knús og kossar frá mér til ykkar. Ég bið innilega vel að heilsa öllum :0)
Þóra S. Guðmannsdóttir (IP-tala skráð) 30.11.2008 kl. 21:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.