5.11.2008 | 04:35
Barack Obama kosinn forseti :0) "Yes, we can!"
Hæ,hæ,
Á mánudaginn fórum við mamma í Farmers Market. Þar var keypt allt í matinn og auðvitað gott rauðvín og hvítvín. Mamma bauð okkur í æðislega góða fiskisúpu. María kom með strákana og opnuð var hvítvíns flaska. Svo var krökkunum komið í háttinn og við supum á góðu hvítvíni. Þegar leið á kvöldið langaði mig ekki í meira vín en María og mamma urðu mjög skemmtilegar og fjörugar þegar líða tók á kvöldið hahaha. Það var mjög skemmtilegt hjá okkur.
Pabbi er búinn að vera að vinna í veröndinni í allan dag, og núna erum við að horfa á kosningarnar. Obama varð forseti klukkustund fyrir miðnætti, mér til mikillar gleði. Vona ég svo innilega að hann eigi eftir að koma með betri og bættari tíma. Þetta er söguleg stund fyrir Bandaríkin og fyrir allt afríska-ameríska fólkið í landinu. Ég man enn eftir því þegar Bush var kosinn en þá var ég í New York árið 2000 og núna árið 2008 er ég stödd enn og aftur í Bandaríkjunum í kosningum. Ég verð að viðurkenna að það er gaman að upplifa svona sögulega stund.
Kær kveðja Þóra
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Þóra Sigurborg Guðmannsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Húrra!
kveðja María
Rúnar og María, 5.11.2008 kl. 18:54
Sæl frænka
Ég gladdist líka... samt finnst mér svo sorglegt að árið 2008 séum við að fagna fyrsta svarta forsetanum! En Bandaríkin voru greinilega ekki tilbúinn fyrr og enn síður fyrir konu!!
Bið að heilsa yfir hafið
Unnur Björk
Unnur Björk Arnfjörð (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 13:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.