18.10.2008 | 21:46
Nýr pallur smíðaður :0)
Jæja, loksins sest ég niður til að skrifa smá fréttir.
Nú er Pétur byrjaður að smíða nýjan pall. Mér til mikillar gleði, enda pallurinn alveg að hruni kominn. Pétur var nú ekki lengi að rífa niður pallinn, enda var hann svo fúinn að naglarnir stóðu bara eftir og var heilmikil vinna í að losa þá alla he he. Nú er það sem betur fer búið og Pétur er búin að klæða pallinn. Því næst setur hann upp nýju hurðina sem við keyptum á milli screened og pallsins. Þá er eftir að gera handriðið og stigann og þá er hann tilbúinn. Jibby. Kannski pabbi dragi okkur að landi með pallinn þegar hann kemur þar sem Pétur er að fara til Íslands á mánudaginn.
Um daginn fóru Pétur í golf og tók Emblu með sér. Það sem Emblu fannst gaman. Nú vill hún fara með honum í hvert sinn sem hann fer. Hún tók margar myndir á myndavélina á golfvellinum og er mjög gaman að sjá hvað litla augað sér og tekur myndir af he he.
Elsku þrjóska Eygló okkar. Hún er farin að geta klifrað yfir rimlana og niður á gólf og á það til að koma nokkrum sinnum niður. Það var mjög fyndið atvik um daginn. Þá var hún búin að tilkynna mér það að hún ætlaði sko ekki að sofna í rúminu sínu og ég sagði henni náttúrlega að fara að sofa enda búin að koma 4 sinnum niður. Síðan heyri ég í tækinu að hún er komin úr rúminu, en ákvað að fara ekki upp í þetta skiptið. Stuttu síðar fer Pétur upp í sturtu og ég byð hann að ath. með Eygló. Hann gengur beint inn í svefnherbergið hennar og finnur hana hvergi og svo allt í einu er honum litið niður á gólf og sér litla stírið steinsofnað á gólfinu alveg í kuðung við vegginn. Við hlógum ekkert smá mikið að þessu hahaha.
Hafið það öll sem allra best, kær kveðja Þóra :0)
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Þóra Sigurborg Guðmannsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvernig er það frænka, þarftu ekki að aðstoða við pallasmíðina? Ég hef það þannig heima hjá mér að ég byrja og svo áður en ég veit er Palli búinn að taka yfir og verkið klárað á skömmum tíma.
Bestu kveðjur úr lestarsölum HÍ
Unnur Björk
Unnur Björk Arnfjörð (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 12:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.